Lárus Jón

Flekaskil

3.690 kr.

Flekaskil

eða nokkrar hugleiðingar út frá jarðfræði og kenningum Alfreds Wegeners sem hvílir frosinn á miðjum aldri djúpt í Grænlandsjökli

Ljóðabókin Flekaskil er eftir Lárus Jón Guðmundsson og ritstjóri var Sigþrúður Gunnarsdóttir. Útgefandi er Hugall ehf.

Hvítir miðaldra karlmenn eru mikið í fréttum þessa dagana og ekki alltaf af góðu tilefni. Skemmdu eplin fá verðskuldaða athygli og viðeigandi fordæmingu en fáir velta fyrir sér líðan og ástandi hinna eplanna í tunnunni. Í Flekaskilum er gægst undir huluna og velt upp áleitnum spurningum: Hver er sprettan á andlegum akri miðaldra karlmanns sem skynjar eigin dauðleika handan við hornið? Á hvaða vegferð er hann? Hvernig líður honum? Verður jarðarförin fjölmenn?

Alfred Wegener og örlög hans urðu höfundi innblástur og hugtök jarðsögunnar slá tóninn á vegferð hans frá vonleysi til vonar.

Bókin er 72 blaðsíður, innbundin með lesborða, hæð er 18,5 cm og breidd 11 cm.

97 á lager

Verð er með virðisaukaskatti. Flutningskostnaður  (póstgjald) til allra áfangastaða á Íslandi er innifalinn í verði.  Vara er afgreitt frá Hugli ehf innan viku frá pöntun. Hugall ehf tekur ekki ábyrgð á töfum í flutningi. Sjá nánar í skilmálum (hnappur efst á síðunni).

Frekari upplýsingar

Þyngd 0.19 kg
Stærð/umfang 11 × 0.7 × 18.5 cm

Umsögn

Engar umsagnir hafa verið gefnar.

Vertu fyrst/ur til að gefa “Flekaskil” umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *