Gátubækur

Bókin um Kakuro og hvernig hún er leyst

790 kr.

Bókin um Kakuro og hvernig hún er leyst er eftir Gareth Moore og þýtt af Lárusi Jóni Guðmundssyni.

Kakuro er japönsk rökþraut sem auðvelt er að læra en ögrandi að ná tökum á. Nafnið er samsetning á japanska orðinu yfir samlagningu og japönskum framburði á enska orðinu cross. Það  má ef til vill líkja gátunni við krossgátu með tölum í stað bókstafa enda er Kakuro gátan þekkt í enskumælandi heimi  undir heitinu Cross sums eða samlagning í kross.  Kakuro hefur þó meiri dýpt. Hún hefur ákveðin líkindi við Sudoku talnagátuna því ekki má nota sama tölustafinn nema einu sinni innan sömu lausnarlínu og einu leyfilegu tölustafirnir eru tölurnar frá 1 til 9. Til viðbótar þurfa samanlagðar tölur hverrar lausnarlínu að jafngilda tölunni í vísbendingarreitnum.

Hugall ehf gaf bókina úr 2006.

Ekki til á lager

Verð er með virðisaukaskatti. Flutningskostnaður  (póstgjald) til allra áfangastaða á Íslandi er innifalinn í verði.  Vara er afgreitt frá Hugli ehf innan viku frá pöntun. Hugall ehf tekur ekki ábyrgð á töfum í flutningi. Sjá nánar í skilmálum (hnappur efst á síðunni).

Frekari upplýsingar

Stærð/umfang 11 × 18 cm

Umsögn

Engar umsagnir hafa verið gefnar.

Vertu fyrst/ur til að gefa “Bókin um Kakuro og hvernig hún er leyst” umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *